Við fórum 4 saman í Haukadalinn um helgina, vorum alveg komnir á tíma með að skoða ný klifursvæði. Meðferðis voru Óðinn, Gummi, Arnar og Davíð(broddalaus ljósmyndari).
Gistum í bústaðnum hjá Adda í Borgarfirðinum á föstudagskvöldið. Tókum daginn nokkuð snemma af stað, brenndum inní Haukadal skíthræddir við þennan bilaða bílstjóra sem enginn okkar skilur hvernig bílprófið fékk :D Sem endaði auðvitað með því að hann ók ofaní eina skaflinn á svæðinu þar sem við gengum frá og festi bílinn.
Við gengum þó inní gilið og byrjuðum auðvitað að kveikja upp í kolunum til að grilla lærið sem við keyptum til ferðarinnar! Þetta er í fyrsta skipti sem ég grilla í frosti og snjó á kolum úti í náttúrunni, algjör snilld!
Augun okkar fylgdust vel með Trommaranum, en hann var alls ekki í klifuraðstæðum vegna mikilla kerta, sem áttu aldeilis eftir að segja til sín síðar. Við ákváðum því að fara bara einhverja easy leið fyrst við vorum nýjir á svæðinu og flestar leiðirnar þarna voru ekki í alveg nógu góðum aðstæðum eða mixaðar, og þar sem við erum ekki farnir að leiða mikið mixaðar leiðir ennþá að þá vildum við ekki gera það þarna þar sem við erum utan fjarskipta og lengst úti í ra$$g@t!.
Við klifruðum því leið sem heitir Aumir fingur sem er 3-4 gráða 60m - auðveld og þægileg leið. Þegar upp var komið tók við leitin að sigboltunum sem voru skráðar í leiðarvísinum. Við gátum ekki fundið þá þannig að við ákváðum að tjékka á að síga niður Trommarann þar sem ísinn var ekkert mjög traustvekjandi þarna efst í fingrunum.
Efst í trommaranum var alveg geggjaður v-þræðingaís sem við notuðum til niðurferðar. Ég fór fyrstur niður og tók það svoldið á sálina að fara framaf brúninni þar sem þetta er dálítið hátt og mjög kertað og óslétt þarna. Þegar ég var um hálfnaður niður brotnaði stórt kerti við hliðiná mér sem var töluvert stærra en ég og lenti utaní vinstri ökklanum á mér, beint á liðakúluna. Það fyrsta sem ég hugsaði var auðvitað bara "andskotans djöfulsins helvítis kerti maður, fokk hvað þetta var óþægilegt". Þegar ég var hinsvegar kominn niður gat ég alls ekki stigið í löppina og hélt á smá tímapunkti að ég hafi ökklabrotnað. Ég náði að koma mér einhvernveginn að leiðinni sem við klifruðum og gæddi mér á besta grill-læri sem ég hef fengið, enda ekkert smá svangur og pirraður.
Það tók mig ca. 2 tíma að drullast niður úr gilinu, enda bara einfóttur og með miklum stuðningi frá Óðni sem á hrós skilið fyrir að hafa hjálpað mér niður alla leiðina.
Það var ýmis lærdómur dreginn af þessum degi, að taka ekki með broddalausan ljósmyndara, ekki vera að þvælast í súper kertuðum leiðum og ekki meiða sig þegar maður er staddur einhversstaðar lengst í burtu.
Arnar fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 23.01.2007 Klukkan 21:35
Snilldar svæði, með fullt af flottum og krefjandi leiðum. Þetta verður sko heimsókt aftur og eitthvað erfiðara tekið þá ;)
DJÖ skrifaði þann 23.01.2007 Klukkan 23:53
Bara muna að taka auka brodda með næst :D
Óðinn skrifaði þann 24.01.2007 Klukkan 14:37
Iss broddar eru fyrir ....ingar, ef þú ert vel hlaðinn af "tje tjeing" þá geturðu bara flutt inn einkashérpa til að halda á þér upp brekkurnar ;)
Gummi St. fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 28.01.2007 Klukkan 11:46
jæja... við Addi fórum í glymsgil í gær og fundum exina mína fyrir neðan spönnina, þokkalega á sig komna. Fundum einnig linsulokið sem Dabbi missti á leiðinni þangað. Hann missti nú allavega sem betur fer ekki af minni linsu... hehehe
Linda Kjútípæ skrifaði þann 29.01.2007 Klukkan 22:39
gott að þú fannst exina ;)
Gummi Stóri fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 01.02.2007 Klukkan 15:54
já... þetta kostar nú ekki nema 28.990 kjell... (stykkið)