Á föstudagskvöldinu brenndum við uppí Landmannalaugar þar sem spáin var rosalega góð fyrir laugardaginn og ætluðum við að taka helst 2 tinda í nágrenninu. Það endaði þó með því að þetta varð hinn fínasti jeppatúr, en enginn tindur tekinn. Það var nú ekkert svo mikill snjór, en samt auðvelt að festa sig, sérstaklega þar sem snjórinn var frekar blautur vegna hláku.
Sunnudagurinn var tekinn í Hvalfirði, í Ýring í Brynjudal. Við fórum samt ekki efsta haftið vegna þunns ís, en við hefðum alveg verið til í að top-rope'a það. Gerðum það samt ekki og sigum bara niður eftir samt mjög fínan klifurdag.
Sveinn skrifaði þann 26.02.2007 Klukkan 16:16
Láttu wef goðið þitt bæta inn rss straumi eða atom.xml fyrir síðuna svo hún virki nú með nýmóðins hugbúnaðir á borð við google reader.