26.12.2007 - Ísklifur

Jólaþurrklifur

Það er ekkert smá skítaveðrið sem er búið að standa yfir síðan í ágúst hérna! Það hefur verið fært á fjöll einhvejra virka daga og varla mikið meira en það. Smá ísaðstæður mynduðust nú fyrir stuttu og var það auðviðtað nýtt. Við erum búnir að heimsækja Múlafjall, Eilífsdal og Teitsgil núna í vetur og hefur gengið ágætlega.

En í tilefni jólanna ákváðum við að það væri stórkostleg hugmynd að fara í þurrtólun í Múlafjall og fórum því bæði á jóladag og annan í jólum. Ekkert betra að gera hvorteðer... ef maður er í fríi þá gerir maður bara það sem er skemmtilegt, ekki satt? Þarna náðum við ágætis myndum þegar við ákváðum að enda annan daginn á smá myndapoppi...

Neðst í Múlafjalli er klettur beint fyrir ofan bílastæðið og þar eru þessir fínu klettar í þetta... varist samt að það er eitthvað lítilræði af lausu grjóti þarna, en við hreinsuðum eitthvað niður. Stórir steinar fyrir ofan sem gott er að tryggja í (vera með línu til að setja utanum þá).

Við erum farnir að fíla þetta mix í ræmur og það fer að líða að því að maður fer að sleppa topropeinu og leiða þetta eins og maður.

Einnig hendi ég inn nokkrum myndum frá síðustu mánuðum úr hinum ferðunum.

Myndir


Þín skoðun

AB skrifaði þann 27.12.2007 Klukkan 00:05

Skemmtilegar myndir.

skuli fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 27.12.2007 Klukkan 01:08

DUGLEGIR;)

Sveinborg fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 27.12.2007 Klukkan 03:22

Flottar myndir! Gaman að sjá þig Gummi, svona vel hjálmaðan!

DJÖ skrifaði þann 27.12.2007 Klukkan 09:16

Þetta kom bara nokkuð vel út, það er samt alltaf bömmer þegar maður er sá sem tekur myndirnar að það koma engar myndir af manni sjálfum :D

Gummi St. fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 27.12.2007 Klukkan 11:39

jebb... ég kannast aðeins við það... það var þó gott að þú gast smellt aðeins af mér eftir að ég smellti af Adda bak og fyrir..

Sveinborg fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 27.12.2007 Klukkan 12:59

Flottar myndir! Gaman að sjá þig Gummi, svona vel hjálmaðan!

Gunna skrifaði þann 28.12.2007 Klukkan 13:30

Flottar myndir. Gaman að sjá eitthvað nýtt á síðunni. Þið eruð býsna flottir srákar :)

skrifa komment
Nafn:
e-mail:
Vefsíða: http://
Texti:
Summan af
9 og 3::
Kort Hvar á landinu