Þann 5. febrúar fórum við þrír félagar af Neyðarlínunni saman á Eyjafjallajökul í skíðaferð. Veðrið var alveg ótrúlega flott og tók ég mér frí í vinnunni til að fara þessa mögnuðu ferð með Gumma og Einari sem voru í vaktafríi.
Við keyrðum austur fyrir fjall um morguninn og lögðum af stað uppá Eyjafjallajökul. Við gátum gengið á skíðunum nánast alla leið, settum skíðin undir okkur rétt fyrir ofan bæjarstæðið við Seljavelli. Snjórinn var þó ekki mjög mikill og dugði rétt til þessa ferðar.
Þó vorum við frekar í seinni kantinum og byrjuðum ekki að ganga fyrren um 10-11 leitið. En þegar við komum uppá topp var sólin að setjast fyrir aftan Vestmannaeyjar með tilheyrandi útsýni. Við fengum okkur að éta/drekka og skíðuðum svo niður í glampandi tunglbirtu sem var ógleymanleg reynsla.
Þegar komið var niður af jöklinum var snjórinn frekar risky til skíðaiðkunnar og held ég að skíðin séu ekki ennþá búin að fyrirgefa mér meðferðina, en þau fengu svoldið að snerta grjót sem leyndist undir þunnu snjólaginu. En allt slapp þetta og við komum sáttir í bæinn um kvöldið.
Ottó Leifsson fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 29.03.2011 Klukkan 13:19
já þetta er glæsileg ferðamennska. Svona ferð væri ég til í að fara. Er ekki málið að bara skella sér af stað, vel búinn að sjálfsögðu.