26.02.2007 - Ísklifur

Andarspönnin

Það hlaut að koma að því að við fengjum að frumklifra leið, og það gerðist núna þegar Olli sendi á ísalp að hann hafði tekið eftir flottum leiðum á leið sinni gengum Húsafell þegar hann var að koma úr Kaldadalnum. Við höfðum reyndar haft auga á nokkrum giljum þarna í haust, en þá var hinsvegar ekki næg ísmyndun til að hægt væri að skoða það nánar.

Í þessa ferð kom með okkur ljósmyndarinn Gísli Hjörleifsson sem er að vinna með Gumma hjá 112. Og eru flestar myndirnar úr ferðinni frá honum.

Við allavega skelltum okkur uppí bústaðinn hjá Adda í Borgarfirðinum á föstudagskvöldið og lögðum síðan af stað í Húsafell á laugardagsmorgninum. Við keyrðum framhjá Húsafelli fyrst, en komumst auðvitað ekki langt þar sem vegurinn er ekki í fólksbílaaðstæðum. En það var nóg til þess að við sáum í umrætt gil. Við keyrðum síðan að bænum "Gamla bæ" og gengum uppí hlíðina, aðkoman er svona 45 mín ganga með smá hækkun. Best er að koma ofanað og ganga ofaní gilið að vestanverðu.

Eftir að hafa skoðað svæðið svoldið var ákveðið að skella sér í eina leiðina þarna sem leit vel út. Gísli er með ákveðið "þema" í ljósmynduninni hjá sér, en hann keypti sér svona gúmmíönd í leikfangabúð sem hann tekur myndir af við ýmis tækifæri... (klifrandi, hræðandi.. ofl.) Ég var að sjálfsögðu látinn klifra með öndina hangandi aftaní mér upp og fékk því leiðin nafnið Andarspönnin. Samt tókum við leiðina í 2 spönnum þó stutt var því ég var eitthvað hálf tæpur þarna. Ég leiddi semsagt fyrri spönnina og Óðinn þá seinni.

Hugmyndir eru uppi um að fara þangað aftur sem fyrst og klára helst flestar leiðirnar þarna... Jafnvel að taka með sér fleiri leikföng og nefna leiðirnar eftir þeim... kannski verður þetta svæði svo bara kallað leikfangaland... hver veit..

Myndir


Þín skoðun

Danni fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 27.02.2007 Klukkan 21:28

Glæsilegar myndir, lítur út fyrir að vera skemmtileg leið!

Anna Systa skrifaði þann 18.03.2007 Klukkan 23:11

já hver tekur svona flottar myndir.. varla sauðurinn hann bróðir minn?

Óðinn skrifaði þann 19.03.2007 Klukkan 17:57

Það segirðu satt Anna, Ingjaldsfíflið hann bróðir þinn þyrfti amk fyrst að læra að nota eina slíka ;) þessar voru teknar af Gísla H. http://www.flickr.com/photos/ghjoll

skrifa komment
Nafn:
e-mail:
Vefsíða: http://
Texti:
Summan af
9 og 3::
Kort Hvar á landinu