08.06.2005 - Fjallamennska

Mont Blanc 2005

Endurskrifað í mars 2012.

Árið 2005 bauðst Gumma að fara á Mt. Blanc í frönsku ölpunum. Að sjálfsögðu var slegið til og er óhætt að segja að þetta hafi verið upphafið af miklu ævintýri sem ekki sést fyrir endan á.

Í leiðangrinum voru Ásmundur Ívarsson, Guðmundur Freyr Jónsson, Haukur Haraldsson, Helgi Guðbergsson, Hrólfur Jónsson, Jón Helgi Guðmundsson og Valgarður Sæmundsson. Við vorum með fyrstu hópunum á svæðið þetta sumarið enda hálfgerður vetur þarna uppi um mánaðarmótin maí-júní.
Kuldinn var dáldill enda voru menn í dúnúlpum og einhverjir urðu slappir af því að vera ekki eins dúðaðir.
Ferðin gekk ágætlega, hæðaveiki tók sinn toll ásamt kuldanum.

Við vorum á eigin vegum þarna og vorum ekki með alpaguide með okkur. Ási og Valli höfðu farið áður, þekktu aðstæður og leiddu okkur hina upp fjallið.
Við fórum upp Traversuna eða The three monts route þar sem gist er í Cosmiques skálanum, farið upp Tacul brekkuna, yfir Mt. Maudit og loks á Mt. Blanc. Þegar við komum þangað var hinsvegar ákveðið að fara niður aðra leið sem heitir Grande Moulet til að þurfa ekki að hækka okkur á leiðinni þegar farið er yfir Maudit.
Á leiðinni vorum við orðnir ansi kaldir og stoppuðum við í neyðarskýlinu Vallot hut þar sem teppi ofl. var til staðar. Sem betur fer ákváðum við að andskotast niður í Grandes Moulet skálann sem var löng ganga en borgaði sig vel þar sem við vorum í góðum hita, miklu neðar og í þjónustuðum skála.
Daginn eftir gengum við svo niður í millikláfstöðina og tókum kláfinn niður í Chamonix.

Við aðlöguðum okkur með því að fara uppí Cosmiques, gista eina nótt og ganga upp Tacul jökulinn daginn eftir og fara svo niður í þorp og hvíla okkur í heilan dag. Vorum ágætlega heppnir með veður en hinsvegar var skíta kuldi þar sem vetur ríkti enn á fjallinu á þessum tíma. Allavega var skyggni yfirleitt gott.

Myndir


Þín skoðun

Fannar skrifaði þann 08.06.2006 Klukkan 03:38

Frábærar myndir, og lítur út fyrir að hafa verið rosalega gaman. Fóru þið með leiðsögumanni af svæðinu eða voru þið með punkta? Langar rosalega að stefna á að fara þangað á næsta ári.

Gummi Stóri fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 12.07.2006 Klukkan 18:47

Sæll.. sá ekki póstinn frá þér fyrren nú.. Við fórum algjörlega á eigin vegum, engir leiðsögumenn og erum að gera það sama núna eftir 2 vikur þá förum við á Matterhorn. Ef þig vantar einhverjar upplýsingar fyrir þína ferð, hikaðu ekki við að senda mér email! Alltaf gaman að geta hjálpað og leiðbeint. kv. Gummi St.

skrifa komment
Nafn:
e-mail:
Vefsíða: http://
Texti:
Summan af
9 og 3::