Loksins var komið að því, festivalið var haldið á Bíldudal helgina 13. - 15. febrúar. Yfir 40 klifrarar voru mættir þegar flest var bæði íslenskir og einhverjir í heimsókn. Veðrið var búið að vera geggjað í einhverjar vikur á undan og byrjaði að hlýna þessa helgi.
Við fórum 4 saman, Gummi, Addi, Óðinn og Dabbi - komum á fimmtudeginum með breiðafjarðarferjunni Baldri og vorum mættir á Bíldó um kl. 18.
Á föstudeginum gerði góða skúr sem bleytti vel uppí okkur, en við klifruðum bara eina leið í styttri kantinum þann daginn, sú leið var í þröngu gili þar sem 3 línur voru og kölluðum við leiðina Gliðruna, þar sem hún var þröng og blaut og settum á hana gráðuna WI 4. - Gliðran, WI 4 45m
Laugardagurinn var svo frábær í alla staði, bjart, léttskýjað, hiti rétt yfir frostmarki þannig að ísinn var það mjúkur og blautur að þetta var eins og að stinga hníf í heitt smjör að höggva öxunum inn. Í þetta skiptið fórum við aðeins legri leið eða í Innrihvilft eða 7andahvilft þar sem gullkisturnar eru grafnar samkvæmt sögunum. Þar völdum við ágætis lænu sem var um 200m neðri partur leiðarinnar var WI 4, en efsta haftið sem var lang brattast gerði leiðina að WI 5. Þessi leið var bara ansi fín, verst að Dabbi var að drepast í hnjánum þennan dag þannig að hann ákvað að klifra ekki með okkur, en tók myndir af okkur neðan úr dalnum þess í stað. Leiðina kölluðum við Bergmálið, wi 5 200m.
Um kvöldið var meistaraleg kjötsúpa í boði ÍsAlp, og heldur betur gat liðið étið, enda flestir mjög svangir eftir daginn.
Gestgjafinn, Jón Þórðarson frá Bíldudal ávarpaði svo hópinn og sagði sögur um skrímsli og gullkistudrauga á svæðinu.
Annars var ekki sérlega mikið myndað í þessari ferð, enda stuttur tími og aðallega klifrað.
Halli Gudmunds skrifaði þann 20.02.2009 Klukkan 10:48
Klassa myndir ad venju Gummi! kv. Halli
Anna Begga systir Arnars skrifaði þann 20.02.2009 Klukkan 23:11
var ekki svolítið gaman og gott að fara upp gliðruna??
Ási ævintýri skrifaði þann 20.02.2009 Klukkan 23:49
Fínar myndir hjá nautabrundinu. :) Takk fyrir helgina.
Gummi St. fannst ekki ( Vefsíða ) skrifaði þann 21.02.2009 Klukkan 15:02
hehehe takk fyrir og jú Anna, það var gaman að sjá Óðinn leiða uppí gliðruna þannig að hann hvarf uppí hana!