19.02.2006 - Ísklifur

Eilífsdalur

Vegna þess að Ísfestivalinu 2006 var aflýst fór stór hópur ÍsAlp félaga í ísklifurferð í Eilífsdal á laugardaginn, yfir 20 fóru af stað frá Select kl. 7 um morguninn og var skipt í jeppana sem keyrðu inn allan Eilífsdalinn.

Hópurinn skiptist dáldið, og var mikill ís á svæðinu og margar leiðir færar, en þú ekki alveg allar. Það mynduðust nokkur teymi og vorum við Addi og Gísli saman í hóp. Ég var fyrir þeirri góðu reynslu að gleyma hjálminum mínum í bílnum á Select þannig að ég var hjálmlaus allan daginn, sem slapp sem betur fer bara nokkuð vel. Gísli var reyndar með hjálm, en var svo heppinn að missa hann niður allt fjallið á leiðinni upp, þannig að við vorum orðnir að "hjálmlausa" vitleysinga hópnum...

Við fórum upp leið sem heitir Einfarinn, en við fórum þó bara upp fyrsta íshaftið og síðan upp bratta snjóbrekku að næsta hafti þegar við síðan snerum bara niður..

Þetta tók allan daginn og var ég kominn heim um kl. 19 um kvöldið.< br/> Ég tók einhverjar myndir, en ekkert of mikið.. var aðallega að klifra..

Myndir


Þín skoðun

adda systa skrifaði þann 19.02.2006 Klukkan 22:30

magnað... þið verið að fara varlega... dísús

Gauti skrifaði þann 20.02.2006 Klukkan 14:42

Helvíti flott. Ég veit ekki hvort ég gæti einusinni komist upp hlíðina að klifursvæðinu, þetta virðist miklu lengra en þegar ég fór og það var nógu erfitt!!

Heimir skrifaði þann 20.02.2006 Klukkan 16:00

Crazy punks maður ;)

Gísli Hjálmar (lausi) skrifaði þann 21.02.2006 Klukkan 18:42

Djöfu... eru þetta flottar myndir, bara alltof fáar nirfillinn þinn ... Ég er að reyna að senda myndirnar sem ég tók til ykkar. Takk strákar fyrir eina frábæra ferðina til viðbótar, var alveg meiriháttar ferð í alla staði ...

skrifa komment
Nafn:
e-mail:
Vefsíða: http://
Texti:
Summan af
9 og 3::
Kort Hvar á landinu